Fjárræktarfélagið Neisti


Það nýjasta:

7. apríl 2012
Yfirlitsskýrslur

Yfirlitsskýrslurnar, sem Sigurður Þór Guðmundsson ráðunautur, kynnti á aðalfundi félagsins í mars eru aðgengilegar á hér á heimasíðunni, smelltu hér.
Þar kemur m.a fram að meðalkjöthlutfall í félaginu 2011 var 41,9% hjá eldri ám og 42,7% hjá veturgömlum ám. Þau bú sem voru yfir meðaltalinu hjá eldri ám voru: Auðnir I, Þverá, Tréstaðir, Dagverðartunga, Þríhyrningur II, Stóri-Dunhagi, Langahlíð, Neðri-Rauðilækur, Litla-Brekka, Brakandi, Syðri-Bægisá, Dvergasteinn, Djúpárbakki 2, Ytri -Bægisá, Fornhagi 2 og Skriða. Hjá veturgömlum ám voru yfir þessi býli yfir meðaltalinu: Tréstaðir, Auðnir I, Langahlíð, Þverá, fornhagi 2, Þríhyrningur II, Stóri-Dunhagi, Djúpárbakki 2, Neðri-Rauðilækur og Litla-Brekka
.

2. apríl 2012
Myndir úr menningar- og fræðsluferðinni

  Í myndaalbúminu eru nokkrar myndir úr menningar- og fræðsluferð Neista í Reykjahverfi og Öxarfjörð á laugardaginn. Myndirnar tók Birgitta Lúðvíksdóttir.

1. apríl 2012
Velheppnuð menningar- og fræðsluferð

Í gær, laugardaginn 31. mars, fóru 15 félagar úr Neista í menningar- og fræðsluferð í Reykjahverfi og Öxarfjörð. Fyrst var stoppað í Skarðaborg í Reykjahverfi, þar sem Þórarinn R. Jónsson, Sigurður Á. Þórarinsson og Helga Helgadóttir tóku á móti hópnum. Næst var haldið að Þverá í Öxarfirði, þar sem Benedikt Kristjánsson og Erla Ingólfsdóttir, ásamt Árna Jóni Kristjánssyni, tóku á móti hópnum. Þar næst var haldið að Ærlæk í sömu sveit og hús tekið á Jóni H. Guðmundssyni og Guðnýju M. Sigurðardóttur. Loks var haldið að Bjarnastöðum í sömu sveit, þar sem Halldór Olgeirsson og Elín Maríusdóttur búa. Alls staðar voru móttökur mjög góðar og innbyrtur mikill fróðleikur um þann fyrirmyndarbúskap sem
stundaður er á búunum
.

29. mars 2012
Meira frá aðalfundi

  Á aðalfundi Neista í vikunni var Guðmundur Víkingsson endurkjörinn í stjórn félagsins. Á komandi starfsári er stjórnin því skipuð þeim Aðalsteini Hreinssyni, Auðnum, Guðmundi Víkingssyni, Garðshorni og Helga Steinssyni, Syðri-Bægisá. Varamenn eru sem fyrr þeir Davíð Jónsson, Kjarna, og Jósavin Gunnarsson, Litla-Dunhaga. Á fundinum var m.a. gerð grein fyrir menningar- og fræðsluferð félagsins sem farin verður austur í Reykjahverfi og Öxarfjörð laugardaginn 31. mars nk. Myndir frá aðalfundinum eru í myndaalbúminu hér á heimasíðunni, sjá til hægri. Myndirnar tók Birgitta Lúðvíksdóttir.

27. mars 2012
Frá aðalfundi
Aðalfundur Neista í gærkvöldi var fjölsóttur og vel heppnaður. Systkinin í Bitrugerði, Hulda og Sigurjón Benediktsbörn voru gerð að heiðursfélögum. Í félagið gengu Egill Már Þórsson, Skriðu, Halla Björk Þorláksdótir, Baldursheimi og Ásdís Gunnlaugsdóttir og Jónas Þór Jónasson, Bitrugerði. Myndir og fleiri fréttir af fundinum munu birtast hér á næstu dögum
.

20. mars 2012
Aðalfundur
Neista verður mánudaginn 26. mars nk. kl. 20:30 í matsal Þelamerkurskóla.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður rætt um áframhald á hrútaeign félagsins.

12. mars 2012
Dagsferð framundan
Stjórnin er að athuga með dagsferð eitthvað austur fyrir, sennilega í lok mars. Það mun skýrast nánar síðar.

20. febrúar 2012
Talning fósturvisa í Kjarna
Á föstudaginn (17. febr.) voru fósturvisar í kindunum í Kjarna taldir. Útkoman var þessi:
Gimbrar á 1. vetri: geldar voru 3, einlembdar 15, tvílembdar 18 og með dauð lömb 2.
Ær á 2. vetri: geldar 3, einlembdar 5, tvílembdar 27 og þrílembdar 2.
Eldri ær: geldar 1, einlembdar 18, tvílembdar 84, þrílembdar 31 og fjórlembdar 2.
Þetta gerir að meðaltali 2,035 lömb á kind og 1,34 lömb í hverri gimbur að meðaltali. 

4. febrúar 2012
Smalatikin Blondie
var aðeins 9 mánaða gömul þegar hún var í frumtamningu góðviðrisdaginn 9. nóvember 2011 hjá Aðalsteini á Auðnum. Það sýndi hún er mjög efnilegur smalahundur. Smelltu hér og horfðu á upptöku sem sýnir það vel.

20. janúar
2012

Smalahundafélag stofnað

Þann 2. desember 2011 var Smalahundafélag Hörgársveitar stofnað í leikhúsinu á Möðruvöllum. Stofnfélagar þess eru 14 talsins. Á fundinn mætti Sverrir Möller formaður Smalahundafélags Íslands og ræddi út á hvað sá félagsskapur gengur.
Undirbúningur stofnunar félagsins hefur staðið í rúmt ár. Að upplagi voru það eigendur Border Collie hunda fóru sem ákváðu að stofna smalahundafélag til að efla hundamenninguna í sveitinni og búa til vettfang fyrir eigendur smalahunda til að hittast og spjalla um hunda. Félagið er þó opið eigendum hvers kyns smalahunda.
Smalahundafélagið hyggst stuðla að útbreiðslu góðra smalahunda og halda þjálfunarnámskeið fyrir félagsmenn og hunda þeirra.
Eftirtalin voru kosin í stjórn félagsins:
Aðalsteinn H. Hreinsson formaður
Ásta J. Aðalsteinsdóttir gjaldkeri
Davíð Jónsson ritari.

25. nóvember 2011
Félagsfundur í Neista

var haldinn fimmtudagskvöldið 24. nóvember kl. 20:30 í Þelamerkurskóla. Þar var farið yfir kjötmatsskýrslur o.fl. og rætt um næstu verkefni félagsins.


24. október 2011:
Hrútanúmerin eru:

Nr. býlis
Sk.h.nr.   Býli Fjáreigandi fj. áa
fj.nr. lægsta nr.
hæsta nr.
 1522981 130911
1 Baldursheimur
Þorlákur Aðalsteinsson
152
 20  101 120
 1522981 130911
1
Björg Sigmar Bragason
26
10
121
130
 1523161 130919
1
Hofteigur Hreinn Guðnason
48
10
 131  140
1523171
130908
1
Hvammur
Félagsbúið 19
10
141
150
1523261
130928
1
Kjarni
Davíð Jónsson
198
30
151
180
1523271
130926
1 Litla-Brekka
Vignir Sigurðsson
13
10
181
190
1523291
130901
1
Litli-Dunhagi
Dunhagi sf.
113
20
191
210
 1523481  130906 1
Spónsgerði Sverrir Steinbergsson
 172  20  211  230
1523511
130924
1 Þrastarhóll Ólöf Harpa Jósefsdóttir
24
10
231
240
1523851
131015
1 Barká Marteinn Þór Magnþórsson
92
10
241
250
1523892
131129
1 Brakandi Sigurður Elvar Viðarsson
40
10
251
260
1523911
131022
1 Dagverðartunga Dagverðartunga ehf.
161
20
261
280
1524031
131166
1 Langahlíð Bragi Konráðsson og Eva Ólafsdóttir
37
10
281
290
1524091
131019
1 Skriða Þór Jónsteinsson
131
20
291
310
1524151
131029
1 Stóri-Dunhagi Árni Arnsteinsson
148
20
311
330
1524191
131028
0 Þríhyrningur Þríhyrningur ehf.
14
10
331
340
1524191
131028
2  Þríhyrningur Jóhannes Gísli Pálmason
21
10
341
350
1524261
 131114 1 Auðnir 1
Aðalsteinn Hreinsson og Sigríður Svavarsdóttir
128
20
351
370
1524461
131101
2 Syðri-Bægisá Helgi Bjarni Steinsson
146
20
371
390
1524531
131107
1 Þverá Þorsteinn Rútsson
82
10
391
400
1524631
131162
1 Bitrugerði Jónas Þór Jónasson
14
10
401
410
1524791
131150
1 Dvergasteinn Jón Björgvinsson
42
10
411
420
1524871
131121
1 Garðshorn Guðmundur Víkingsson
415
30
421
450
1525071
131124
1 Ytri-Bægisá 1
Haukur Sigfússon og Þorvar Þorsteinsson
114
20
451
470
1525121
131140
1 Mið-Samtún Einar Kristinn Brynjólfsson
128
20
471
490
1525161
131128
1
Neðri-Vindheimar
Sverrir Brynjar Sverrisson
180
20
491
510
1525281
131136
1 Syðri-Brennihóll Björn Björnsson
148
20
511
530
1734271
131035
2
Auðbrekka
Bernharð Arnarson
21
10
531
540
1805071
131171
1 Fornhagi 2
Anna Guðrún Grétarsdóttir
10
10
541
550
1525151
131120
1 Neðri-Rauðilækur Rauðilækur ehf.
100
20
551
570
2187661
131143
1 Djúpárbakki 2
Birgitta, Þórður og Sigmundur
40
10
571
580
1525431
  1 Tréstaðir Kristján Jónsson
10
10
581
590
 7003791  131179 1  Birkihlíð 6
Guðmundur Sigvaldason
 5  10  591  600
 7003661  131191 1  Ægisgata 21
Guðmundur Steingrímsson
 10  10  601  620
 1523321   1  Möðruvellir 1
Ragnhildur, Brynjar og Solveig Lára
 20  10  611  620


29. september 2011:
Hrútasýning
  Hrútasýning haustsins var í dag í hesta- og fjárhúsinu í Skriðu. Þar var fjöldi hrúta vigtaðir, ómskoðaðir og metnir. Ari Teitsson og Sigurður Þór Guðmundsson voru sérfræðingar hrútasýningarinnar. Fjölmenni var á hrútasýningunni, um 60 manns. Í kaffihléi sýningarinnar var þessi vefur formlega opnaður. Nokkrar myndir frá hrútasýningunni eru í myndaalbúminu.
Dómar fimm efstu veturgömlu hrútanna og þriggja efstu lambhrútanna urðu sem hér  segir:
Veturgamlir:
1. Smyrill  Skriðu
   
Haus: 8 H + h: 9  B + útl.: 9  Bak: 9  Malir: 9 
Læri: 18 Ull: 8,5  Fætur: 8  Samr.: 8,5  Alls: 87
2. Radix Djúpárbakka 
   
Haus: 8 H + h: 9  B + útl.: 9  Bak: 9  Malir: 9 
Læri: 18 Ull: 7,5  Fætur: 8  Samr.: 8,5  Alls: 86
3. Grímur  Skriðu
   
Haus: 8 H + h: 9  B + útl.: 9  Bak: 9  Malir: 9 
Læri: 18 Ull: 8,0  Fætur: 8  Samr.: 8,5  Alls: 86,5
4. Bjartur Skriðu 
   
 Haus: 8 H + h: 8,5  B + útl.: 8,5  Bak: 9  Malir: 9 
 Læri: 18 Ull: 8,5  Fætur: 8  Samr.: 8,5  Alls: 86
5. Örvar  Auðnum
   
Haus: 8 H + h: 9  B + útl.: 8,5  Bak: 9  Malir: 9 
Læri: 18 Ull: 8,5  Fætur: 8  Samr.: 8 Alls: 86
Lambhrútar:
1. Spaði Lönguhlíð      
Haus: 8 H + h: 9  B + útl.: 9  Bak: 9  Malir: 9 
Læri: 18,5 Ull: 8,5  Fætur: 8  Samr.: 8,5  Alls: 87,4
2. Fálki  Skriðu      
Haus: 8 H + h: 8,5  B + útl.: 8,5  Bak: 8,5  Malir: 9 
Læri: 18 Ull: 8,5  Fætur: 8  Samr.: 8,5  Alls: 85
3. ?  Barká
   
Haus: 8 H + h: 8,5  B + útl.: 8,5  Bak: 8,5 Malir: 8,5 
Læri: 17 Ull: 8,5  Fætur: 8  Samr.: 8,5  Alls: 84


Flettingar í dag: 0
Gestir í dag: 0
Flettingar í gær: 13
Gestir í gær: 6
Samtals flettingar: 5834
Samtals gestir: 2486
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 01:04:56

Tenglar